Bloggfærslur mánaðarins, desember 2008
Það er alveg merkilegt hvað mér gengur erfiðlega að koma rusli og drasli út úr húsi. Ég tek til, oft og iðulega, en mér finnst alltaf jafn mikill haugur liggja eftir. Tók til dæmis til á skrifstofunni í gærkvöldi. Sorteraði og flokkaði, henti og reif. Jú, ég sé muninn, það var t.d. stór svartur ruslapoki sem ég þarf að koma í haugana (held ekki að tunnan rúmi hann ásamt öðru rusli sem þangað fer). Raðaði þar að auki í 2 kassa sem þurfa að fara niður í kjallara. Núna er ekkert í gluggakistunni, eða ofan á hillunum, en borðið er enn einn haugur og á gólfinu er föndurdótið mitt ennþá. Ég get ekki ákveðið mig hvort það á að fá að vera þarna eða flytjast niður í kjallara ásamt garni og efnisbútum.
Ég las það í bók um Feng Shui að orka sem ekki getur flotið frítt um staðnar og hleðst upp þar sem hlutir eru fyrir. Þrátt fyrir góðan ásetning tekst mér aldrei að koma öllu mínu rusli og drasli fyrir það sem það á heima. Hvað ætli Feng Shui segi um það, hihihi.
Ég er líka þannig innréttuð að það þarf allt að gerast helst í gær og það sem ekki gerðist í gær getur bara beðið þangað til ég nenni að taka á því aftur. Skipulag vantar ekki en það er framkvæmdin sem er erfið.
Fann líka við þessa tiltekt 3 myndir sem eiga að fara upp á vegg. Ein fór upp strax í gærkvöldi, á ganginn hjá okkur, hinar tvær bíða. Eiginmaðurinn ekki viss um að við ættum stálnagla sem þarf til að setja í veggina í stofunni.
Þegar ég lít í kringum mig, sé ég hluti liggja hingað og þangað, þar sem þeir ekki eiga heima, en það er nú bara þannig að ég get ekki hlaupið um endalaust og tínt upp allt sem aðrir meðlimir fjölskyldunnar hafa látið liggja. Þá gerði ég ekki annað, en ég gæti kannski hugsað betur um mitt eigið drasl. Kannski ég láti bara slag standa og drífi það sem eftir er af. Þá verð ég svo glöð innra með mér og ánægð með dagsverkið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)